
7
Íslenska
Undirbúningur fyrir notkun
7. Styðjið á „ “ Hnappinn – ekki er nauðsynlegt að
bíða eftir að ketillinn hitni. Þetta virkjar vatnsdæluna
og fyllir ketilinn af vatni. Eftir nokkur augnablik fer
vatn að streyma frá lögunarhausnum. Þegar bollinn er
fullur, styðjið á „ “ hnappinn að nýju til að stöðva
vatnsdæluna. Ketillinn er er nú tilbúinn til notkunar.
8. Setjið flóunarkönnuna undir túðuna á froðuarminum.
9. Opnið rólega fyrir „ “ Skífuna með því að snúa henni
rangsælis, þrýstið síðan og haldið „ “ hnappnum.
Þetta virkjar vatnsdæluna og fyllir froðuketilinn með
vatni. Fáum augnablikum síðar fer vatn að streyma út
um túðuna.
10. Þegar kannan er u.þ.b. hálf full, sleppið „ “
hnappnum og lokið „ “ Skífunni með því að snúa
henn réttsælis þar til hún stöðvast. Froðuketillinn er nú
tilbúinn til notkunar.
11. Sé ekki ætlunin að laga expressó að þessu sinni, styðjið á
„ “ hnappinn og slökkvið á vélinni.
ATH: Styðjið ekki á „
“
eða „ “ hnappana án þess
að vatn sé í geyminum. Vatnsdælan gæti skemmst. Við
ráðleggjum þér að slökkva á Espresso-vélinni þegar hún er
ekki í notkun. Það sparar orku og dregur úr sliti á vélinni.
Að laga expressó
Fyrir fullkominn árangur þegar hellt er upp á expressó, sjá
bls. 12-15.
1. Gangið úr skugga um að að nóg vatn sé í
vatnsgeyminum (vatnsborðið ætti að vera milli „max“ og
„min“ línanna).
2. Veljið annað hvort minni eða stærri síuna. Notið þá minni
fyrir stakan bolla (30 ml) af expressó,og þá stærri fyrir
tvo (60 ml). Minni síuna má nota með þar til gerðum
kaffipokum.
3. Þrýstið síunni inn í greipina, þar til hann smellur á sinn
stað. Ekki fylla síuna með kaffi að svo stöddu.
4. Komið greipinni fyrir undir lögunarhausnum látið
handfang greipinnar nema við „ “ á vinstri brún
málmhringsins. Lyftið greipinni upp í lögunarhausinn,
færið siðan handfang greipgrinnar til hægri, svo það
nemi við „ “ á málmhringnum.
5. Styðjið á „ “ Hnappinn til að kveikja á vélinni.
Upphaf
Endir
Komentarze do niniejszej Instrukcji